Suddalega busy!

Jæja, þá er ég loksins farin að upplifa "upptekin" tilfinninguna á nýjan leik. Síðasta vika er búin að vera ótrúleag busy.....og ég er sko alveg að fíla það! Held samt að það sé því miður ekki e-ð sem ég má venjast GetLost En við skulum sjá til - ég reyni allavegana Cool

Setti fullt af myndum inná Facebook í gær sem þið verðið öll að skoða - þær eru geggjaðar!!!

Annars er svosem fátt að frétta, svona þannig. Engar gígantískar breytingar á lífi mínu - engin börn á leiðini, ekkert brúðkaup í aðsigi - ekki einu sinni ást í aðsigi! En lífið er alveg ljómandi gott hérna í Austurríki. Búin að fara 1 sinni á bretti og 1 sinni á skíði so far, og telst vera afbragðsgóður nemandi Grin Svo nú bíð ég bara spennt eftir að fleiri nenni að fara með mig svo ég geti nú æft mig og orðið suddalega góð. Ég get neflinlega ekki farið ein, því ég þarf að hafa e-n sem getur gripið mig þegar ég missi stjórn á skíðunum og bruna villt áfram í átt að næsta skurði eða e-ð!!.....og það er líka gott að hafa e-n til að hjálpa sér að standa upp þegar maður fellur kylliflatur í miðri brekku (ekki það að það hafi gerst eða neitt......*hóst*).

Tölvan mín er búin að vera með endalaus leiðindi, enda búin að vera á barmi dauða síðustu 2 árin eða svo......svo ég ákvað að notfæra mér heimsóknina mína til Snorra í Steyr um daginn og keypti mér nýja tölvu :D Hún er rosa sæt og fín og grá og létt og lítil og nett - og heitir Rúfus! So far er ég að elska hana, eins gott að hún haldi áfram að standa fyrir sínu Cool
En já, ég fór s.s. í heimsókn til Snorra vinar míns í Steyr núna fyrir helgi. Fór reyndar fyrst til Linz á EM í handbolta, hitti hann þar og fór svo með honum til Steyr þar sem ég var í heimsókn í einn dag áður en hann og Eva, vinkona hans, komu með mér hingað til Schladming og skíðuðu alla helgina. Það var svo viðbjóðslega gaman á leiknum að ég á eiginlega ekki orð til að lýsa því!!! Fórum s.s. á leik Íslands og Austurríkis. Allur leikurinn var æðislegur. Bauð uppá allt sem góður leikur þarf að hafa. Frábæra takta, brjálaða stemmningu (í íslensku aðdáendunum) og þvílíka spennu. Lokaniðurstaðan var þó því miður ekki alveg jafn góð Errm .....en við töpuðum leiknum niðrí jafntefli á síðustu sekúndunni (okey, ég hef ekki hugmynd um hvernig maður skrifar þetta orð, þar sem maður skrifar alltaf bara sek. help someone!!!)......eins og þið vitið líklegast flest. Það var ótrúlegt að sjá þetta. Ég trúði því baa engan vegin að þetta hafði gerst. Á þessar síðustu sek meira að segja á video og er búin að horfa á það aftur og aftur.....bara skil þetta ekki!!! Eeeeen, úrslitin komu þó ekki að sök og við unnum riðilinn samt sem áður - GO ÍSLAND!!!! Grin
Miðinn okkar gilti svo á leik Danmerkur og Serbíu líka, svo við ákváðum að staldra við og horfa á þann leik líka. Ekki var stemmningin minni þar, en það var ÓGEÐSLEGA mikið af Dönum þarna!!! Það hafa verið svona 40 - 50 Íslendingar staddir á okkar leik, svo við vorum varla prósentutala af áhorfendunum - þó við höfum vissulega látið mest í okkur heyra - en það voru Danir ÚTUM ALLT!!! Við studdum þá að sjálfsögðu, enda frændur vorir með meiru....og vorum sko ekki ósátt við þá ákvörðun, enda tóku þeir þessa Serba alveg í bráðskemmtilegum leik Joyful

Í síðustu viku var svo loftbelgjahátíð hérna í Schladming og það voru loftbelgir útum allt. Það var ógeðslega svalt að sjá þá, en ég fór því miður ekki í einn slíkan.......enda kostaði ferðin 250 evrur á manninn......sem mér fannst nú helst til of mikið Errm Eeeeen, hátíðin var ljómandi skemmtileg - rosa mikið í anda Stars Hollow, en það er svosem ekkert verra!! Wink

 Nú ehhh, annars veit ég svosem ekki hvað meira ég get sagt ykkur í augnablikinu. Er líka eiginlega alltof þreytt til að finna uppá meiru, svo ég ætla að taka mér powernap í eins og klukkutíma áður en ég þarf að fara aftur að vinna (sem ég er alveg í alvöru að gera þessa dagana - JEY, JEY, JEY!!!) Kissing


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mig hefur aldrei á ævi minni langað jafn mikið til að vera á EM í handbolta eins og núna og ég öfunda þig og hina Íslendingana sem ég þekki þarna einum of mikið!! Klárlega ætla ég að fara næst þegar það verður stórmót :)

Var að skoða myndirnar þínar og þær eru ekkert smá skemmtilegar allar og þú virðist vera búin að eignast nýtt líf þarna úti í Austurríki, bannað samt að gleyma skemmtilegu og eiturnettu vinkonum sínum á Íslandi!! ;)

Bið bara að heilsa þér og vonandi helduru áfram að vera rosalega busy og hafa það rosalega æðislegt og frábært þarna hjá Austurrísku fjölskyldunni þinni og nýju vinunum þínum :)

Maren Heiða (IP-tala skráð) 25.1.2010 kl. 13:24

2 identicon

Biðjum að heilsa Rúfusi og öllum hinum. Nú viljum við fá blogg oftar þar sem "tölvuleysi" er ekki lengur gild afsökun ;)

Ætla svo að senda þér jólakortið þitt við tækifæri... það er ennþá í bunkanum hérna heima sem heitir "kort til útlanda" en ekkert af þeim eru farin úr húsi ennþá...hummhumm ;)

Knús frá okkur ;)

Jóhanna og krakkarnir (IP-tala skráð) 26.1.2010 kl. 10:10

3 identicon

rosa gaman að lesa bloggin þín frænka, endilega skrifaðu mörg fleiri :D  er farin að skoða myndirnar á facebook ;)

Laufey (IP-tala skráð) 26.1.2010 kl. 17:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband