Lalalalalala ljúfa

Núúúúúú.......hér í Rohrmoos (*hóst* Stars Hollow *hóst*) er allt voða rólegt þessa dagana. Ástæða: það er Vínarvika - sem sagt, frívika í Vín og nágrenni og því allir þaðan að ferðast um landið.....eða utanlands (sem ég held reyndar að sé algengara hjá Vínarfólki due to the fact hvað þau eru "illa" liðin annarstaðar í Austurríki - þá sérstaklega í Styriu). Það fáa fólk sem er hér í fríi núna er svo allt e-ð fjölskyldufólk, svo skemmst er frá því að segja að lítið er um fjör hér í bæ þessa dagana. Það er nú samt bara ágætt held ég.....maður þarf að safna kröftum fyrir hina alræmdu viku 7, en þá er frí í Styriu og Danmörku og þá er víst allt PAKKAÐ af Styriubúum og Dönum hérna. Ég er sérstaklega spennt fyrir Dönunum og ætla mér sko heldur betur að massa dönskuna á þá Cool 

Þetta nætur slalom sem allir eru búnir að vera að missa sig yfir síðan ég kom var svo á miðvikudaginn í síðustu viku - og það var alveg ágætt. Um 48.000 manns sem voru á hátíðinni og heldur betur þröngt á þingi!! Helst til of þröngt fyrir minn smekk, en á tímabili beið ég bara eftir að verða troðin undir! Það skánaði þó allt þegar við komum að Talbachshenke tjaldinu þar sem við vorum svo allan seinni hluta keppninar Wink Ölvunin á þessu kvöldi var SVAKALEG!!! Ef ykkur vantar samanburð held ég að Þjóðhátíð í Eyjum sé það sem kemst næst þessu - í bland við unglingadrykkju Menningarnætur og 17.júní mixað saman. Enda held ég að það sé ekkert voðalega mikið fjarri lagi að segja að ég hafi verið eina manneskjan í Schladming og nágrenni sem var EKKI þunn daginn eftir.....enda drakk ég ekki dropa Joyful

Handboldinn er að sjálfsögðu búinn að owna sjónvarpið mitt að undanförnu (loksins að risastóri flatskjárinn sem ég er með í herberginu mínu fékk að njóta sín) þar sem ég fékk ekki miða á neina fleiri leiki Frown og verð ég nú að segja að ég uni bara alveg suddalega sátt við 3ja sætið Grin Strákarnir stóðu sig tuddavel og nú er ég jafnvel enn stoltari af uppruna mínum en áður - ekki það að ég hafi e-ð þurft á því að halda Blush Hefði nú samt alveg viljað sjá Króata jarða þessa Frakka, eeeeeen það skiptir svosem ekki öllu Cool

Að öðru leyti er fyrirhuguð ferð til Salzburgar eftir helgi - líklegast á mánudaginn - þar sem planlögð er ferð í H&M þar sem pils og peysa verða keypt (ekki búin að geta hætt að hugsa um hvorugt síðan ég sá það í H&M í Linz og keypti það ekki......eins gott að bæði sé ennþá til!!!!) ásamt því sem leitað verður hátt og lágt að afmælisgjöf handa "bróður" mínum hérna úti og síðast en ekki síst ræðismaður Íslands í Salzburg heimsóttur og kastað á hann eins og einu Icesave atkvæði Cool
Svo er líka fyrirhuguð ferð á INTERRAIL BABY!!!!! Núna í maí-júní með Möggu, Magga, Krissa og Sigga (Kristjönu og Sigrúnu). Við Margrét erum búnar að vera on fire síðustu daga við að panta hostel og skipuleggja hlutina nánar (þar sem við erum svo sjóaðar þá höfum við sjálfskipað okkur sem skipulagningsnefnd þessarar ferðar) og þetta verður sko einum of AWSOME (eins og unglingarnir myndu segja Wink). Planið er svohljóðandi:
París
- hugsa reyndar að ég sleppi því) - Belgía - Amsterdam - Þýskaland (Innsbrug og Munchen allavegana, jafnvel e-ð meira
Austurríki
- ætla að koma með þau hingað til Schladming og sýna þeim allt og svo ætlum við að skoða e-ð fleira, Salzburg, jafnvel Graz og e-ð
Ítalía
-tökum Feneyjar og e-ð og verðum svo í Mílan 6.-9. júní þar sem við förum á MUSE TÓNLEIKA BABY!!!!!
"Júgóslavía"
- ætlum að keyra gömlu Júgóslavíu frá Ítalíu og niður til Grikklands og stoppa á nokkrum stöðum - læra að sörfa hjá vini mínum í Króatíu og svona Cool
Grikkland
- eyðum síðustu dögunum á dásamlega Grikklandi áður en ég flýg svo aftur hingað til Austurríkis og þau hin fara e-ð öll í sitthvora áttina Joyful

Spennandi??? JÁJÁJÁJÁJÁ InLove


Suddalega busy!

Jæja, þá er ég loksins farin að upplifa "upptekin" tilfinninguna á nýjan leik. Síðasta vika er búin að vera ótrúleag busy.....og ég er sko alveg að fíla það! Held samt að það sé því miður ekki e-ð sem ég má venjast GetLost En við skulum sjá til - ég reyni allavegana Cool

Setti fullt af myndum inná Facebook í gær sem þið verðið öll að skoða - þær eru geggjaðar!!!

Annars er svosem fátt að frétta, svona þannig. Engar gígantískar breytingar á lífi mínu - engin börn á leiðini, ekkert brúðkaup í aðsigi - ekki einu sinni ást í aðsigi! En lífið er alveg ljómandi gott hérna í Austurríki. Búin að fara 1 sinni á bretti og 1 sinni á skíði so far, og telst vera afbragðsgóður nemandi Grin Svo nú bíð ég bara spennt eftir að fleiri nenni að fara með mig svo ég geti nú æft mig og orðið suddalega góð. Ég get neflinlega ekki farið ein, því ég þarf að hafa e-n sem getur gripið mig þegar ég missi stjórn á skíðunum og bruna villt áfram í átt að næsta skurði eða e-ð!!.....og það er líka gott að hafa e-n til að hjálpa sér að standa upp þegar maður fellur kylliflatur í miðri brekku (ekki það að það hafi gerst eða neitt......*hóst*).

Tölvan mín er búin að vera með endalaus leiðindi, enda búin að vera á barmi dauða síðustu 2 árin eða svo......svo ég ákvað að notfæra mér heimsóknina mína til Snorra í Steyr um daginn og keypti mér nýja tölvu :D Hún er rosa sæt og fín og grá og létt og lítil og nett - og heitir Rúfus! So far er ég að elska hana, eins gott að hún haldi áfram að standa fyrir sínu Cool
En já, ég fór s.s. í heimsókn til Snorra vinar míns í Steyr núna fyrir helgi. Fór reyndar fyrst til Linz á EM í handbolta, hitti hann þar og fór svo með honum til Steyr þar sem ég var í heimsókn í einn dag áður en hann og Eva, vinkona hans, komu með mér hingað til Schladming og skíðuðu alla helgina. Það var svo viðbjóðslega gaman á leiknum að ég á eiginlega ekki orð til að lýsa því!!! Fórum s.s. á leik Íslands og Austurríkis. Allur leikurinn var æðislegur. Bauð uppá allt sem góður leikur þarf að hafa. Frábæra takta, brjálaða stemmningu (í íslensku aðdáendunum) og þvílíka spennu. Lokaniðurstaðan var þó því miður ekki alveg jafn góð Errm .....en við töpuðum leiknum niðrí jafntefli á síðustu sekúndunni (okey, ég hef ekki hugmynd um hvernig maður skrifar þetta orð, þar sem maður skrifar alltaf bara sek. help someone!!!)......eins og þið vitið líklegast flest. Það var ótrúlegt að sjá þetta. Ég trúði því baa engan vegin að þetta hafði gerst. Á þessar síðustu sek meira að segja á video og er búin að horfa á það aftur og aftur.....bara skil þetta ekki!!! Eeeeen, úrslitin komu þó ekki að sök og við unnum riðilinn samt sem áður - GO ÍSLAND!!!! Grin
Miðinn okkar gilti svo á leik Danmerkur og Serbíu líka, svo við ákváðum að staldra við og horfa á þann leik líka. Ekki var stemmningin minni þar, en það var ÓGEÐSLEGA mikið af Dönum þarna!!! Það hafa verið svona 40 - 50 Íslendingar staddir á okkar leik, svo við vorum varla prósentutala af áhorfendunum - þó við höfum vissulega látið mest í okkur heyra - en það voru Danir ÚTUM ALLT!!! Við studdum þá að sjálfsögðu, enda frændur vorir með meiru....og vorum sko ekki ósátt við þá ákvörðun, enda tóku þeir þessa Serba alveg í bráðskemmtilegum leik Joyful

Í síðustu viku var svo loftbelgjahátíð hérna í Schladming og það voru loftbelgir útum allt. Það var ógeðslega svalt að sjá þá, en ég fór því miður ekki í einn slíkan.......enda kostaði ferðin 250 evrur á manninn......sem mér fannst nú helst til of mikið Errm Eeeeen, hátíðin var ljómandi skemmtileg - rosa mikið í anda Stars Hollow, en það er svosem ekkert verra!! Wink

 Nú ehhh, annars veit ég svosem ekki hvað meira ég get sagt ykkur í augnablikinu. Er líka eiginlega alltof þreytt til að finna uppá meiru, svo ég ætla að taka mér powernap í eins og klukkutíma áður en ég þarf að fara aftur að vinna (sem ég er alveg í alvöru að gera þessa dagana - JEY, JEY, JEY!!!) Kissing


Það kom þá að því....

....að ég fékk "farðu að blogga" komment - og þá geri ég það að sjálfsögðu Cool Það er neflinlega svo leiðinlegt að blogga þegar öllum virðist vera alveg sama - en ein sál getur dimmu í dagsljós breytt með þessum 3 litlu orðum!!

Það er allt frábært að frétta úr Austurríki, verður bara betra með hverjum deginum Tounge Ég er meira að segja farin að kynnast stelpum og læti - ef það eru ekki tíðindi!!! 

Það er farið að vera fólk á hótelinu eiginlega alltaf, svo ég er loksins farin að vinna af e-i alvöru. Yfirleitt er ég samt að vinna frá svona korter yfir 7 á morgnana og til svona 10. Þá er ég búin að gefa öllum morgunmat og þrífa öll herbergin. Ég hef samt verið að fara svoldið mikið í búðina eftir hádegi og vinna þar. Það er ótrúlega gaman, en ég get samt voða takmarkað gert þar sem ég tala ekki þýsku og veit ekkert um skíði eða skíðatengda hluti. Ég er samt alltaf að læra meira og meira og það er farið að vera smaaaaaáááá hjálp í mér - sem er gott Joyful

Svo er félagslífið líka alveg að kippa við sér. Ég fór meira að segja ein í partý á laugardaginn (þegar ég segi ein þá meina ég nottlega án öryggisteppisins míns - líka nefnt Roland - eða "bróðir" minn). Hitti stelpu þegar við vorum á rodeln (sleðast) í síðustu viku.....good things always happen while rodeln (nema þegar maður klessir á tré og deyr næstum því)....sem er kærasta vinar hans Rolands. Við náðum svona líka suddalega vel saman, en þá tilkynnir hún mér að hún sé að fara að flytja til Ástralíu í næstu viku (flutti þangað í gær)...hversu týpískt!!! En hún var að halda kveðjupartý á laugardaginn og bauð nýju bestu vinkonu sinni (mér) að sjálfsögðu í það. Roland lenti svo í því að þurfa að vinna svo hann komst ekki í partýið. Ég bakkaði þá alveg og sagðist ekkert ætla að fara heldur þar sem ég þekkti engan - en þá sagði hann að það ætti nú ekki að vera mikið mál fyrir mig þar sem ég ætti svo ótrúlega auðvelt með að kynnast fólki og væri svo opin og skemmtileg. Með þessari setningu vann hann alveg í "uppáhalds" - leiknum. Gott að kunna að sleikja fólk upp. Hann fyllti mig sjálfsöryggi og trausti með þessum orðum sínum (sem voru samt ekki alveg þessi orð þar sem hann kann nottlega ekki íslensku) og sendi mig svo aleina í partýið. OG VITI MENN, eignaðist vini Wink Ég ákvað að gera þetta að stelpukvöldi og einbeita mér að því að kynnast STELPUM, sem ég og gerði Grin Náði samt best saman við stelpu sem býr í Vín (týpískt - eina sem var þarna sem býr ekki hér í Schladming).

Svo erum við bara alltaf að rodeln-ast. Það er svo fáránlega gaman að ég held alltaf að ég sé að deyja úr fjöri. EEEEEENNNN, það jafnast þó ekki á við að fara á snjósleða (vélsleða), en ég gerði það í fyrrakvöld og Ó MÆ GOD hvað það var gaman. Fórum s.s. í hyttu hérna uppí Rohrmoos og hittum þar fullt af fólki. Þar eru alltaf saman komnir strákarnir sem vinna í fjallinu á kvöldin (þurfa nottlega að hittast í bjór og svona fyrir vinnu). Ég veit ekki alveg hvað það er nákvæmlega sem þeir gera, en þeir fara alltaf uppúr miðnætti og keyra upp fjallið á sleðunum sínum. NEMA HVAÐ að í fyrrakvöld var mér boðið í sleðatúr. Ég hélt án gríns að ég myndi deyja úr skemmtun. Held þetta sé alveg eitt það skemmtilegasta sem ég hef á ævinni gert. Get ekki beðið eftir næstu ferð (sem verður klárlega þar sem þeir eru allir svo viðbjóðslega skotnir í mér - ha, hógvær, ég.....einmitt!!Halo).

Í gærkvöldi fórum við svo í næsta bæ að horfa á night-slalom (eða e-ð svoleiðis). Það var ýkt gaman - sérstaklega fyrir mig því ég var svo ógeðslega vel klædd að ég var ekki að krókna úr kulda eins og samferðarmenn mínir - FACE!!! Tounge Það er samt aðal night-slalomið hérna í Schladming eftir 2 vikur. Þá eru karlarnir að keppa (þetta voru konurnar, og það nenna voða fáir að horfa á þær) en þá er reiknað með BRJÁLUÐUM fjölda fólks hingað. Minnir að þau hafi talað um að það séu yfirleitt um 40.000 manns hérna á þessu - en það skal tekið fram að ég bý í 4000 manna bæ!!!! Allar gistiaðstöður allstaðar eru lööööngu uppbókaðar og fólk sofandi á dýnum útum allan bæ. Ég hlakka ýkt til að fara á það, sérstaklega þar sem við eigum bláan passa þar, en ekki rauðan - sem þýðir að við erum á stað þar sem við actually gætum séð e-ð......og hitt fræga Cool

Ég er enn að bíða eftir að ná að mastera þýskuna. Á frekar langt í land með það ennþá, en er samt farin að skilja smá!!! Heimilisfólkið hérna er líka orðið rosa duglegt að tala við mig á þýsku, svo það hjálpar - þau eru búin að vera að gera það í viku núna (segja s.s. hlutina á þýsku fyrst og ég reyni að skilja þá og svo segja þau þá á ensku) og ég finn strax rosa mikinn mun Joyful Svo er stefnt á fyrstu skíðakennsluna á föstudaginn - boy o boy segi ég bara!!!

Annars er ég búin að vera ótrúlega ódugleg með myndavélina síðustu daga, en stefni á betrumbætur í þeim málefnum!!! Woundering

Knús á ykkur öll dúkkurnar mínar!! - farin á date við Gilmore girls Cool


Vandamál!

Það eru svo margar Facebook status hugmyndir að ásækja mig þessa stundina að ég hef ákveðið að hnipra hér niður blogg um þær allar ;)

* Miss Viking (núverandi status. Kemur til eftir gærkvöldið þar sem ég hlaut þetta enn nýja viðurnefni á hverfispubbnum okkar hérna í Rohrmoos)

* Var búin að gleyma hvað rauður Snara lakkrís er gómsætur

* Með tognun í hálsi eftir ævintýri næturinnar - small price to pay to the partygods

* Mælir eindregið með nætursleðaferðum!! Ógnvekjandi en SUDDALEGA skemmtilegar!

* Elskar Íbúfen!!!!

* Hefur komist að því að bananar smakkast öðruvísi í Austurríki en á Íslandi.

* Hvar er húfan mín?? :(

* Fékk gefins meter af bjór í gær!

* Langar í McDonalds

* Óskar öllum gutes nosjah

* Ætlar að vera öðruvísi og ekki segja gleðilegt ár í statusnum mínum eins og ALLIR aðrir!

* Djammaði í gær í ullarnærbuxum, flíspeysu, snjóbuxum, úlpu, gönguskóm og með húfu og vettlinga.

* Vann á nýársdag - WHAT UP??

* Keypti sér snjóbuxur í gær sem kostuðu 180 evrur....ÞAÐ GERA 36.000 ÍSLENSKAR KRÓNUR!!!

* Fékk útborgað í gær :D

* Er illt í öllum líkamanum eftir ævintýri næturinnar - en er alveg sama því það var svo suddalega gaman!!!

* ....er uppáhalds....og er að fílaða ;)

* Hnetur í kvöldmat.....veitiggi meðþa!

* ...og Svanavatnið sem er á BLASTINU hér fyrir utan herbergisdyr mínar - undarlegt??


Þá held ég að ég sé búin að fá ágætis statusútrás í bili :D
Ætla að fara að horfa á Skaupið og athuga hvort það hafi verið eins frábært og Facebook statusar vilja meina ;) - hendi svo kannski inn myndum síðar í kvöld....og jafnvel öðru bloggi við tækifæri þar sem árið 2009 verður gert upp.....er það ekki alltaf jafn móðins?? ;)


Silvester!

Uppáhalds kvöld ársins!

Það er e-ð við gamlárskvöld sem ég bara eeeeeelska. Það er svo ótrúlega táknrænt fyrir mér. Markar endalok og upphaf - leting go and opening up. Það gefur manni líka tækifæri til að skoða sjálfan sig, skoða árið sem er að líða, og leggja upp nýtt ár. Það gefur manni tækifæri til að gera upp hluti í eigin lífi, litla og stóra - sem skipta máli og skipta ekki máli.

Ég veit ekki nákvæmlega hvað það er, en á Gamlárskvöld finnst mér alltaf eins og allt sé mögulegt og maður byrji á square one á svo ótrúlega margan hátt!!

Það verður án efa suddalega skrítið að fagna komu nýs árs umkringd fólki sem ég hef aldrei hitt áður, þar sem ég er að fara með einum gaurnum héðan að hitta vini hans og fara að sleðast lengst uppí fjalli (það er víst ferlega móðins when in Austria), nema ég hef aldrei hitt vini hans - svo ég kem til með að þekkja engan nema hann FootinMouth .......en ég efast ekki um að það verði suddalega gaman, allavegana sleðahlutinn - og nottlega flugeldarnir sem ég simply loooooooooovvvvvvveeeeeeInLove

En ég óska ykkur öllum GLEÐILEGS ÁRS hunangsbollurnar mínar, og hlakka til að sjá ykkur öll á árinu 2010, eða "ári ævintýranna" eins og ég hef kosið að kalla það Cool

Love you all longtime og hafið það ótrúlega gott í kvöld. Treysti því að þið skjótið öll einum flugelda mér til heiðurs Wizard


Mér finnst...

....vera kominn tími á blogg!! Ekki það að það hafi nokkur maður kvartað yfir bloggleysi mínu - frekar sár Crying

Héðan úr Ölpunum er allt ljómandi gott að frétta.
Jólin eru búin að vera þau sérkennilegustu, en samt ljómandis ágæt. Ég fékk meira að segja nokkra pakka og allt Grin Fjölskyldan sem ég bý hjá gaf mér gjafabréf á pizzastað og ógeðslega flotta úlpu. Svo fékk ég nokkra pakka frá Íslandi - þar á meðal uppáhalds: harðan disk með fullt, fullt, fullt af bíómyndum og þáttum og læti frá dásamlegu alvöru fjölskyldunni minni Smile Hann hefur hlotið nafnið Bóbó. Við Bóbó erum búin að eiga ljómandi góða daga hérna saman - hann er klárlega nýjasti besti vinur minn InLove
Svo fékk ég líka nokkur jólakort til að prýða herbergið mitt með - gaman.
En eins og ég sagði að þá eru jólin búin að vera rosalega sérkennileg. Nógu asnalegt er það nú að halda þau án fjölskyldu og vina, en pylsusúpan og áfengisneyslan voru nú ekki beint til að gera þau eðlilegri. Aðfangadagur var voða huggulegur framanaf. Eyddi honum meira og minna á netinu að tala við fólk sem bætti aðeins upp "vöntunina" á fjölskyldunni minni og vinum. Svo klæddi ég mig upp og greiddi mér og málaði....eins og venja er á jólunum, fór svo fram um klukkan 5 og ætlaði að athuga hvort ég gæti ekki hjálpað e-ð til, en svo var víst ekki. Það er neflinlega tiltölulega lítið mál að elda pylsusúpu!!!! Svo ég fór bara aftur inní herbergi og slappaði af (eftir alla áreynslu dagsins) og kom svo aftur fram klukkan 6 - þar sem jólin byrja þá. Það var þó ekki alveg svo gott, því strákarnir þurftu að skjótast í fjósið, svo maturinn átti að byrja um klukkan 7. Ég ákvað þó að sitja inní eldhúsi til að vera pínu social! Svo komu allir loksins og við gátum hafið matinn. Þá varð mér þó litið í kringum mig og sá þar hvar allir voru klæddir í sín venjulegu föt og ekkert tilhöfð. Strákarnir allir í stuttermabolum og gallabuxum og stelpan í gallabuxum og síðerma bol. Mamman var reyndar í svörtum buxum og síðerma bol með e-u gullskrauti - pínu fín - og Oma var í voða krúttaralegum kjól. En jólin þykja greinilega ekkert tilefni til að punta sig upp hér GetLost Við borðuðum svo pylsusúpuna af bestu lyst, hún smakkaðist alveg ágætlega - bara alveg eins og maður ímyndar sér að pylsusúpa smakkist. Eftir matinn beið ég svo í ofvæni eftir að fá eftirrétt, sá fyrir mér í hyllingum að ég fengi kannski ÍS (hef ekki fengið ís í MÁNUÐ!! Held án gríns að það sé lengsta tímabil í lífi mínu sem ég hef farið án þess að borða ís!!!)....en svo gott var það nú ekki. Ég fékk þó eftirrétt - BJÓR OG SNAFS!! Ég vissi ekki alveg hvernig ég átti að mér að vera en tók þó þátt eins og allir aðrir og fékk mér bjór og snafs. Svo sátum við bara í rólegheitum við matarborðið - og drukkum - næsta svona klukkutíman. Svo var komið að pakkaopnun. Þá færðum við okkur yfir í stofuna þar sem millistrákurinn spilaði 3 jólalög á trompet og það var kveikt á kertum og þau sett á tréð. Þá loksins datt ég í jólagírinn og var alveg að fíla stemmninguna. Það entist þó ekki lengi því þegar hann hafði lokið þriðja laginu voru ljósin kveikt og ráðist var á pakkana. Ég sat voða spennt og hlakkaði til að sjá hvað þau væru öll að fá og svona en það fór víst fyrir lítið. Við settumst öll niður nema krakkarnir 3, þau fóru í það að taka pakkana undan trénu og sortera þá til sinna eiganda. Á svona 5 mínútum sorteruðu þau alla pakkana og svo réðust allir á sína hrúgu - hver í sínu horni. Svo ég hef ekki HUGMYND um hvað þau voru að fá....og miðað við hvað það tók þau skamman tíma að opna þetta allt efast ég um að þau hafi mikla hugmynd um það heldur. Þegar allir þúsund pakkarnir höfðu verið opnaðir (sem sagt svona 20 mínútum síðar) fórum við svo aftur inní eldhús þar sem var....jújú, you guessed it.....drukkinn bjór og snafs!!! Þar sátu allir að sumbli frameftir nóttu. Ég entist þó frekar stutt, enda ekki þekkt fyrir mikið snafsúthald Halo .....en föðursystirinni sem býr hérna þótti ég alltof edrú miðað við hana og fyllti því á glasið mitt í gríð og erg allt kvöldið - svo ég ákvað að láta mig hverfa áður en áfengið næði yfirhöndinni!!!
Á jóladag var svo svaka fínn matur í hádeginu. E-r spagettísúpa í forrétt, rosa góður kalkúnn í aðalrétt og e-ð ávaxtadót með líkjörssulli útá í eftirrétt. Ég get nú ekki sagt að maður hafi haft mikla lyst eftir ævintýri kvöldsins áður, en ég var dugleg að narta í kalkún frameftir degi Joyful ....ávaxtasullinu sleppti ég þó, enda ekki mikill áhugi á neinskonar áfengisneyslu!! Restinni af jóladegi eyddi ég svo uppí rúmi að horfa á alls kyns jólamyndir og þess háttar. Á annan í jólum er svo alltaf alveg brjálað að gera í búðinni sem þau eiga, svo það voru allir (including me) á fullu í vinnu þá. Eftir langan dag var svo endað á að skreppa á pubbinn - svona þar sem það var nú annar í jólum. Í gær komu svo loksins fullt af gestum í hótelið okkar, svo ég var að vinna þar á fullu fyrir hádegi. Eftir hádegi fór ég svo aftur í búðina og reyndi að hjálpa til þar. Það er samt ekkert svakalegt gagn í mér þar sem ég a) tala ekki þýsku, b) skil ekki þýsku, c) veit ekkert um skíði eða neina hluti þeim tengdum. Ég er samt að læra smám saman og náði alveg að afgreiða 2 í gær Cool Eftir að þeim vinnudegi var lokið og ég var að búa mig til heimferðar kom svo einn gaurinn til mín og sagði "okey, let's go!". Ég vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið og vissi ekkert hvað hann var að tala um, en þá voru víst allir að fara saman á veitingastaðinn við hliðiná að fá sér bjór þar sem einn gaurinn hafði átt afmæli fyrir 2 vikum eða e-ð. Svo við fórum þangað og allir borðuðu og drukku langt framá nótt. Í morgun vaknaði ég svo hress og kát klukkan hálf 8 og fór að vinna - rosa gaman að vera farin að vinna svona svoldið Wink
Svo þetta hafa verið jólin mín - í hnotskurn Wizard Því miður ekki búin að borða yfir mig af svínakjöti, laufabrauði og hangikjeti.......en sannarlega búin að fá minn skammt af áfengi - fyrir næstu árin held ég!! FootinMouth
Áramótin nálgast svo óðum, en þau verða örugglega mjög skemmtileg. Það er ekkert svona fjölskyldu thing á áramótunum og ekki einu sinni borðað saman. Öll fjölskyldan hér verður örugglega að vinna, þar sem sleðaleigan er opin til klukkan 3 um nóttina. Einn gaurinn úr búðinni bauð mér samt að koma með sér og e-m 25 vinum hans í e-a hyttu hérna uppí einu fjallinu. Þar ætla þau að borða (og líklegast drekka bjór ef ég þekki þetta fólk hérna rétt - ég hugsa að ég láti bara setja eplasafa í mitt glas, þau eiga aldrei eftir að sjá muninn) og svo verður horft á flugelda og rennt sér á sleða niður einhverja 10 kílómetra ef ég skyldi hann rétt. Það er víst e-ð voða móðins hér að fara í svona nightrace á sleðum. Þetta verður örugglega mjög skemmtilegt Smile


Ég fékk nýtt viðurnefni í gær "Rohrmoos number 1 celebrity" en vinsældir mínar hér fara síður en svo dvínandi. Ekki bara er ég framandi (við Íslendingar erum alveg næstum því í útrýmingarhættu) heldur er ég líka alveg útí hött sæt OG miklu skemmtilegri en nokkrum datt í hug. Athyglin sem ér er að fá hérna er sko eiginlega útí hött - mitt áður risastóra egó þarf held ég að fá sér sæti í flugvélinni þegar ég loksins fer aftur heim - ef ekki bara sér flugvél!! Whistling
....ef ég kem aftur heim. Það virðist vera almenningsálit hér að ég komi ekkert til með að fara aftur heim. Fólk er rosalega upptekið af því að ég þurfi nú að finna mér kærasta hérna, þá verði miklu auðveldara að læra tungumálið - og kærastatillögur fylgja svo yfirleitt með líka, oft á tíðum er um að ræða syni fólks eða bestu vini. Þau eru einstaklega upptekin af því að reyna að sannfæra mig um að ég eigi eftir að vera hérna í Rohrmoos að eilífu. Ég veit ekki alveg meðþa sko. Frábær staður, æðislegt fólk og ótrúlega dásamlegt allt hérna......en ég get ekki búið á stað þar sem fólk gengur ekki í hælum!!!! Sorry Errm En ég veit þó allavegana að ég er vel liðin, that's a plus Cool

Ég vona að þið hafið öll átt suddalega góð jól músarindlarnir mínir!

Kossar og knúsar og ást á ykkur öll InLove


Tinna segir.....

....Frohe Weihnachten!!!

 

 

 


Eitt blogg á dag kemur skapinu í lag.....

....eða var það kannski "ein H&M ferð í viku kemur skapinu í lag"?? .......jæja, hvort heldur sem er að þá skiptir það ekki máli, ég passa inní bæði í dag Cool

Skelltum okkur s.s. í aðra kaupstaðaferð í dag, og að þessu skipti var förinni heitið til Linz - sem er þriggja korters akstur frá, alveg eins og Salzburg, bara í hina áttina. Ég fílaði Linz nú ekki alveg eins vel og Salzburg, og H&M búðin þar var ekki alveg jafn stór - en það var vel hægt að finna ýmsar nauðsynjavörur þar, og ekki gerði útsalan sem var í gangi þar förina neitt verri ;)

Fattaði þar sem ég sat í bílnum áðan að það er bara vika í jólin. Ég er algjörlega ekki að ná því. Það er ótrúlega skrítið að hugsa til þess að það séu að koma jól. Hér er allt voða fallega jólaskreytt, og ég á fullt af jólasnjó - en jólaskapið er ekki komið fyrir fimmaur........og ég er ekkert að búast við því neitt fyrr en á næsta ári bara. Það verður samt án efa gaman að upplifa jólin öðruvísi en alltaf, þó ég eigi sannarlega eftir að sakna vina og vandamanna í spað!!!!

Að öðru leyti er nú ekkert brjálað að frétta. Er búin að vera voða dugleg síðustu daga að koma eldhúsinu í gistihúsinu í stand. Fengum risa sendingu með alls kyns eldhúsáhöldum og svoleiðis dóteríi í byrjun vikunar og ég er búin að vera að þrífa það allt og koma því fyrir og raða og svona, suddalega gaman. Sem minnir mig á það. Kann einhver töfralausn við að losna við lím af hlutum. Við s.s. vorum að fá alveg heilan haug af hnífapörum og það var svona stikamerkismiði á hverjum einasta hlut. Þegar ég var búin að eyða svona korteri í að reyna að plokka miðana af 2 göfflum ákvað ég að taka allt heila klabbið og henda því í heitt vatn, þá færi þetta pottþétt af. Allt kom þó fyrir ekki og strikamerkið fór af - en skyldi límið eftir á!!!! Í dag sat ég svo í svona 10 mínútur að reyna að skafa límið af einni teskeiðinni og það reyndist bara algjörlega ÓMÖGULEGT!!! Svo allar hugmyndir hvernig skal ná þessu af eru vel þegnar!! GetLost

Við Pavel (sem heitir víst ekki Paul eins og ég hafði alltaf staðið í trú um - og er ekki rússi heldur.....dæmi um samskiptarörðugleika haldiði?? FootinMouth) ákváðum að hafa smá bonding time í gær og fórum og fengum okkur bjór saman. Það var rosa gaman og mikið talað og mikið hlegið......alveg e-ð sem ég þurfti á að halda. Efast ekki um að við eigum eftir að vera dugleg að gera þetta í vetur, þar sem við erum álíka einmanna hérna - hehe Tounge Við erum líka búin að finna frábæra lausn á þessu bjór/fitun vandamáli. Það er neflinlega bar hérna uppí Rohrmoos, bara í svona korters göngufæri - og ef við löbbum fram og til baka að þá fitnum við ekki neitt þrátt fyrir að við fáum okkur einn eða tvo bjóra Grin .......meira að segja, miðað við brekkurnar (sem drápu okkur reyndar næstum því) gætum við jafnvel bara GRENNST!!! En það væri svo sannarlega ánægjuleg tilbreyting hérna í landi MATAR og FITUNAR!!! Ég er til dæmis búin að borða meiri skinku (alls kyns, venjulega, kjúklinga, kalkúna, spægipylsu) í DAG en ég gerði allt síðasta ár til samans eða e-ð!!!! Ég var samt sjúklega séð um daginn og keypti mér hrökkbrauð til að borða svona af og til, það er örlítið hollara en þessar endalausu brauðbollur......sem eru samt suddalega góðar Joyful

Á morgun verður svo förinni heitir á jólahlaðborð með búðinni þeirra. Þar er spáð heljarinnar partýi og ég efast ekki um að það verður hörkustuð. Krúttara "bróðir" minn hann Roland er voða kátur að ég sé að koma með og ætlar að kynna mig fyrir öllum vinum sínum. Ég er voða spennt....verst að þeir eru allir 19 ára - eeeen, geta svosem alveg verið skemmtilegir þrátt fyrir það Cool Sólrún var nú e-ð að kommenta á það á mynd hjá mér á Fb um daginn að ég væri bara að kynnast strákum hérna og það er bara ALVEG satt!!! Ég er alveg búin að komast að því að stelpur eru ógeðslega leiðinlegar upp til hópa þegar kemur að því að reyna að kynnast þeim. Þær eru suddalega lokaðar og fráhrindandi!!! Ég ætla því að reyna að bæta um betur það sem eftir lifir lífs míns, og taka öllum opnum örmum Wizard En, kosturinn við að vera bara að kynnast strákum er a) ég þarf aldrei að borga sjálf fyrir bjórinn minn og b) ég hef e-n til að horfa á fótbolta með Grin En sjáum hvort það detti nú ekki einhverjar stelpur inn með tíð og tíma - vonandi!!!

Nú, að öðru leyti hef ég svosem frá fáu að segja. Fylltist bara allt í einu svo miklum eldimóð til að hnipra hér niður nokkrar línur, svo ég ákvað bara að vera ýkt flippuð og gera það - eins og þegar við fórum í keilu hér um árið......ahhh, good times Joyful

En að endingu vil ég nota tækifærið hér og óska uppáhalds Bárunni minni til hamingju með afmælið sitt í dag Wizard Ég vona að þið séuð öll búin að senda henni kveðjur og segja henni hvað hún sé sæt og klár og best Wink


Langar þig að senda mér jólakort???

Þú mátt það :D

.....enn skemmtilegra ef því fylgir mynd, eða myndir InLove

Það skal sent á:

Steinsdóttir, Tinna Rós
Fahrlechweg 40
8971 Rohrmoos
Austria

 


Feit í snjónum! ;)

JÆJA, rétt upp hönd sem eru orðnir óþreyjufullir eftir nýju bloggi frá Austurríki!!! (eins gott að þið hafið öll rétt upp hönd Wink)

Það er svosem ekkert óhemju mikið að frétta síðan síðast. Ekki enn komið fólk í gistihúsið okkar hérna, en það er væntanlegt bara um helgina (held ég - eða strax í næstu viku) svo þetta fer nú allt að gerast. Vann meira að segja í alveg e-a 5 tíma eða e-ð í dag, við að þrífa allt eftir síðustu gesti og undibúa komu hinna nýju Cool Á morgun eigum við svo von á iðnaðarmönnum sem ætla að klára að setja upp eldhúsið þarna hinumegin og svona, svo á miðvikudaginn ættum við að geta farið í að sjæna staðinn aðeins til og gera leggja lokahönd á allt. Það verður nú gaman Grin

Ég var voða dugleg að kynna mér umhverfi mitt um helgina og fór niðrí Schladming báða dagana. Á laugardaginn labbaði ég útum allt í bænum og kynnti mér allar helstu staðsetningar. Fann meira að segja bar sem sýnir flestalla Manchester United leiki.......JEY Grin Því miður var samt Sky stöðin sem átti að sýna Manjú leikinn á laugardaginn akkúrat biluð, en ég fer klárlega þangað að horfa á næsta leik Joyful Svo rölti ég um jólaþorpið sem er niðrá göngugötu. Ótrúlega krúttlegt, samanstendur af nokkrum svona sölubásum, sem flestir eru samt bara að selja drykkjarföng - og þá aðallega e-ð sem heitir Glüwein, en það er víst alveg ferlega aðal hérna á jólunum.....sem er fínt, því þetta er alveg hinn ágætis drykkur, og líka voða heitur og góður....sem er alveg ljómandis frábært í þessum kulda hérna Blush Ég hef einmitt tekið eftir miklum kvörtunum á Facebook yfir veðrinu heima og ég skal sko alveg segja ykkur það að það er enginn 10°hiti hér - no sir!!! Hér er bara snjór á hverju strái og allir sjúklega hamingjusamir Joyful

Á fimmtudaginn skellti ég mér með Elisabet (mömmunni) og Hansa (kærastanum hennar) í "kaupstaðaferð" til Salzburgar þar sem við eyddum deginum. Fórum og skoðuðum e-ð jólaþorp, fórum út að borða, skelltum okkur í mollið og versluðum alls kyns nauðsynjavarning Cool Ég keypti mér t.d. uppháa strigaskó, þar sem skótískan mín virðist ekki alveg vera að gera sig hérna í Austurríki. Allstaðar sem ég mæti í hælun, hvort sem það er út að borða, í messu eða á röltið um bæinn, þá horfir fólk alltaf á mig eins og ég sé að misskilja lífið alveg suddalega mikið!! Ég hef nú aldrei verið one to turn down attention, en ég er samt ekki alveg að fíla þessa.....svo ég held að elsku bestustu bestu hælaskórnir mínir sem ég lifi fyrir verði bara að fá að húka inní skáp meira og minna næstu mánuði Errm Svo eru öll fötin mín líka e-ð way wrong hérna, en svo virðist vera að þar sem ég gangi ekki í skíðafötum allan daginn, alla daga að þá sé ég svoldið out! Ég er reyndar ekki alveg búin að átta mig á hvort augngoturnar sem ég er að fá séu: "vá hvað hún er ógeðslega hallærisleg" eða "vá hvað hún er suddalega stylish".......ég er að spá í að trúa því bara að um seinni valkostinn sé að ræða og halda mínu striki ótrauð áfram........í strigaskóm samt, þar sem ég er alveg viss um að hælarnir séu ekki að gera góða hluti - auk þess sem þeir eru helst til ópraktískir í þessari veðráttu hérna Whistling

Í gær var ég svo aaaalgjör víkingur og labbaði niðrí Schladming (í strigaskónnum). Það tók mig einhverjar 45 mínútur ca bát og var ææææðislegt. Umhverfið var svo fallegt að ég var bara hálf dáleidd alla leiðina. Held ég eigi alveg eftir að láta mér detta í hug að rölta þangað oftar, þó ég efist stórlega um að ég komi nokkurn tíman til með að labba heim aftur, því brekkurnar hérna eru sko ekkert grín!!! En ástæðan fyrir því að ég fór niðreftir í gær var sú að hann Snorri vinur minn ákvað að skella sér í sunnudagsbíltúr, ásamt Evu vinkonu sinni, og koma að heimsækja uppáhalds mig í Schladming Wizard Hann býr í bæ sem heitir Steyr og er svona ca 2,5 klst akstur héðan. Við skemmtum okkur voða vel, löbbuðum útum allan bæ reyndar óvart þar sem ég lét þau ganga bæinn á enda til að fara á veitingahúsið "mitt", en svo var það bara lokað - úbs - en það var svosem allt í lagi þar sem það tekur svona u.þ.b. 8 mínútur að labba úr einum enda bæjarins í hinn ;) Ég er svo búin að plata hann í að koma í lengri heimsókn eftir áramót, og svo skelli ég mér kannski til Steyr einhverja helgina....ohhh, svo gaman að eiga vini Joyful

Annars fitna ég bara og fitna, enda ekki við öðru að búast þegar maður borðar ENDALAUST og hreyfir sig ekki neitt!!! Ég hélt að bjórinn yrði mitt helsta vandamál hérna úti, en annað hefur sko heldur betur komið á daginn. Hans hefur jú alveg verið neytt, enda væri maður nú lítið "með" ef maður ætlaði sér að láta hann ALVEG eiga sig, en ég er að BORÐA svo mikið að ég hef sjaldan kynnst því öðru eins!!! Það er alltaf heitur matur í hádeginu, og þá erum við ekkert að tala um pasta eða súpu eða e-ð - neinei - það er alltaf svaka veislumatur. Alltaf kjöt, og Elisabet (mamman) stendur yfirleitt í eldamennsku í svona 2 tíma á hverjum morgni. Það versta er svo að ég hef ekki enn fengið mat sem mér finnst vondur!!! Svo er alltaf kvöldmatur líka, og þá eru hinir ýmsu pasta eða brauðréttir mjög vinsælir.....grennandi - ÉG HELD EKKI!!! Ég er samt að reyna að passa aðeins uppá hlutina með því að drekka alltaf vatn með matnum, það er allavegana e-ð - ikke?? Þar sem ég ligg hérna uppí rúmi og skrifa þessi orð sé ég útundan mér að maginn á mér á ekkert mjög langt með að ná brjóstunum, og ég er bara búin að vera hérna í 2 vikur.....shæse!! 

Rússneski skíðakennaragaurinn er svo kominn hingað, en það hefur komið í ljós að hann er víst ekki rússneskur, hann er Króati - smávægilegur misskilningur ;) Draumar mínir um að eiga "ég tala enga þýsku og skil ekki neitt" samfélag við hann urðu þó að engu þegar ég hitti hann og hann er bara fluent í þýsku!!! - GAT NÚ VERIÐ!! Við hittumst samt á förnum vegi (eða, reyndar bara á ganginum í gistihúsinu) í dag og bonduðum svona líka svakalega. Hann talar neflinlega alveg þessa líka ljómandi góðu ensku, auk þess að tala þýsku, svo við munum mjög sennilega koma til með að eiga enskumælandi samfélag á komandi dögum, vikum og mánuðum Wink .....svo vinalistinn er alltaf að lengjast Grin

Að öðru leyti er ég bara á fullu að reyna að læra einhverja þýsku. Nýjasta nýtt er að nú er ég búin að skreyta herbergið mitt hátt og lágt með bleikum post-it hjörtum. Ég fletti sem sagt upp heitum á hinum ýmsustu hlutum hérna inni hjá mér, skrifaði þýskt heiti hlutana á bleikt post-it hjarta og límdi það á. Þetta er þegar að bera svakalegan árangur, þó það séu bara svona 3 tímar síðan miðarnir fóru upp Joyful Svo hressir þetta líka svo uppá herbergið, það er orðið voðalega bleikt og krúttaralegt e-ð InLove

Annars hef ég nú svosem frá fáu að segja. Ég er búin að setja myndir inná Facebook af híbýlum mínum hérna, svo þar getiði séð hvernig ég bý.....og séð myndir af nokkrum vinum sem ég er búin að eignast - jey Grin Verst að allir þessir vinir eiga heima í einhverja klukkutíma í burtu, svo það verður ekki mikið úr þessum vinsköpum held ég (má maður segja "vinsköpum"??)

Ég vona að það sé hoppandi gott að frétta af ykkur öllum, og hvet ykkur alveg endilega til að senda mér línu með öllu helsta slúðrinu og svona........ég vil vita allt sem gerist á próflokadjömmum krakkar mínir Wink Ef einhver kýs að nota tölvupóst frekar en Facebook verð ég bara ánægð, þar sem tölvudraslið mitt er voða mikið á móti Facebook þessa dagana og leyfir mér mjög takmarkað að gera það sem ég vil þar - en þið getið alltaf sent mér tölvupóst á tinnarosst@gmail.com

Annars bið ég bara að heilsa ykkur og sendi snjókveðjur héðan úr Ölpunum Halo

Love you longtime mýslurnar mínar


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband